Sumir dagar eru erfiðari en aðrir !
Dagurinn í dag er pottþétt einn af þeim. Klukkan fimm í nótt voru kunngerð úrslit í stúdentaráðskosningunum og fóru þau þannig að Vaka fékk rétt tæp 50% atkvæða og var einungis 4 atkvæðum fá því að ná inn fimmta manni. Staðan er því sú sama og hefur verið í vetur eða 4-1-4. Gjörsamlega glatað verð ég að viðurkenna. Ég var í símanum í allan gærdag og talaði við miklu, miklu fleiri en fjóra sem höfðu gleymt að skilríkjum heima, gleymt að kjósa eða hreinlega nenntu ekki að standa í því að labba að kjörborðinu og gefa sér tvær mínútur í það að tryggja virkan meirihluta í stúdentaráði !!! En það þýðir víst ekki að gráta, við verðum bara að taka þetta næst.
Annars er ég nú búin að gráta meira en góðu hófu gegnir í dag. Góður vinur minn, Svavar Guðbjörn Svavarsson, lést 2.febrúar síðastliðinn eftir erfiða baráttu við krabbamein. Hann var jarðsettur í dag frá Hallgrímskirkju. Athöfnin var einstaklega falleg en um leið svo óendanlega erfið. Ég hef sem betur fer ekki lent í því fyrr að missa vini mína og vona innilega að ég þurfi ekki aftur að fylgja góðum vini til grafar svo langt fyrir aldur fram.
Blessuð sé minning Svavars Guðbjörns Svavarssonar.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home