25 janúar 2006

Jæja, best að tilkynna það að ég sé enn á lífi. Svolítið mikið að gera í skólanum og í Vöku og við að vera húsmóðir og ég veit ekki hvað og hvað. Mætti líka í bootið í morgun og var send út að hlaupa ásamt öllum þeim sem mættu með útiföt. Pælingin var að hlaupa um 12 kílómetra en þar sem ég hef nú ekki stundað útihlaup síðan ég var í fyrsta bekk í MS þá lét ég mér nægja að skokka ca. 3km. Kom til baka þegar tíminn var hálfnaður, skellti mér að sjálfsögðu í inniföt og kláraði æfinguna með innipúkunum. Verst að þau voru að taka suicide á fullu og ég sem var búin með hlaupakvótann. Lét mig samt hafa það og fór vel sátt í sturtu. En nóg um mig. Það er víst hægt að láta meta bloggið sitt til fjár. Mitt er sem sagt svona mikils virði.....


My blog is worth $2,258.16.
How much is your blog worth?