
Janúarlok !
Síðasti dagur janúarmánaðar er í dag, só far hefur hann gengið ágætlega fyrir sig og ef að líkum lætur þá verður restin jafn ágæt. Ótrúlegt hvað ég er alltaf jafn hissa þegar janúar klárast, árið bara rétt að byrja og svo búmm, 1/12 af því bara búinn!!!
Framundan er febrúar með sínum 28 dögum, einni árshátíð, einum kosningum, 14 boot camp æfingum, einni grasekkju helgi og eflaust einhverju fleiru skemmtilegu;)
Og fyrst ég nefndi kosningar þá er ég að sjálfsögðu að tala um stúdentaráðskosningarnar sem verða 8. og 9. febrúar næstkomandi. Eins og þið eflaust vitið þá er ég mjög hörð Vöku manneskja og bið ykkur því um að hugsa vel til mín og mæta á kjörstað þessa daga og X-A. Í tengslum við þessar kosningar er nokkuð þétt dagskrá þessa viku og næstu og má þar nefna pókerkvöld á miðvikudag, trúbadorakvöld á fimmtudag og svo stórsfmælispartý Vöku á laugardag. Kosningamiðstöðin í Landsímahúsinu við Austurvöll er svo auðvitað opin alla daga og það er alltaf heitt á könnunni. Um að gera að kíkja við !

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home