Hetja dagsins er ....
...ég sjálf sem drullaðist á lappir í morgun og fór á tveggja tíma Boot camp útiæfingu í Laugardalnum. Æfingin snerist að miklu leyti um hlaup, ekki beint mín sterka hlið en ég lét mig hafa það og stóð mig bara nokkuð vel verð ég að segja. Tókum líka nokkrar armbeygjur, froska og svo fengum við að skríða á maganum í grasinu. Það var ekki beint geðslegt þar sem að það var líklega meira af andaskít þarna en grasi en það þýddi lítið að væla yfir því. Kom heim um hádegi, köld í gegn og hef verið hálf orkulaus síðan. Ætla samt pottþétt að mæta á næstu útiæfingu sem verður eftir tvær vikur !

1 Comments:
Þú ert svo dugleg ég dáist að þér!!
Sendu inn athugasemd
<< Home