Helvítis DV....
Langar að benda ykkur á link hér til hliðar sem vísar beint á undirskriftasöfnun gegn ritstjórnarstefnu DV en hún hefur, eins og fram kom í fréttum í gær, dregið að minnsta kosti einn mann til dauða. Leyfi mér að efast um að þessi aumingjast maður hafi verið sá fyrsti sem gafst upp fyrir þeim.
Að öðru mun gleðilegra þá vil ég loksins koma á framfæri hamingjuóskum til hennar Tinnslu minnar sem komst í gegnum hjúkkuklásusinn og er þar af leiðinni verðandi hjúkka, til lykke;)
Svo vil ég einnig benda öllum á að fylgjast vel með á Stöð 2 í kvöld en það mætti sem sagt team frá þeim á Boot camp æfingu í morgun og skildist mér að sýnt yrði frá því í kvöld. Er ekki viss hvort að þetta verði í fréttunum eða Íslandi í dag. Þess má geta að ég geri ekki ráð fyrir að sjást í mynd þar sem þeir voru nú aðallega að fylgjast með strákunum en maður veit þó ekki, kannski sést ég e-ð sveitt og sæt !

1 Comments:
Takk sætust:)
Sendu inn athugasemd
<< Home