Enn á lífi á nýju ári !
Hef gert nokkrar tilraunir til þess að koma með gott nýársblogg en blogger hyggst klárlega ekki ætla að vera vinur minn árið 2006. Í dag er fyrsti skóladagurinn á nýju ári og þar með er "fríinu" lokið. Fríið er haft innan gæsalappa þar sem það einkenndist meira af vinnu, endalausum fjölskylduboðum og tíðum heimsóknum vina og vandamanna heldur er þessum týpíska "liggja uppí sófa og gera ekki rassgat" fílíng. Byrjaði aftur í Boot camp 2.jan, drulluerfitt að byrja aftur eftir áthátíðina miklu en það var ekkert slakað á og var erfiður föstudagstími þess valdandi að ég tiplaði um á tánum í allan gærdag. Var sem sagt svo illt í kálfunum að ég gat ekki gengið eðlilega. Af þessu sökum skrópaði ég í bootinu í morgun í fyrsta skipti meðvitað. Hef auðvitað áður misst af tíma en þá hef ég annaðhvort sofið yfir mig eða verið hreinlega lasin, í morgun skrópaði ég bara ! Bæti kannski úr þessu seinnipartinn og mæti á æfingu klukkan fjögur, er allavega að lagast í löppunum og slepp hugsanlega við að fara á háum hælum í skólann en það var pælingin því að ég get bara alls ekki gengið með iljarnar flatar...... hmmmmm, þetta hljómar undarlega en allavega þá ætla ég að setja upp andlit og mæta í tíma á háum hælum eður ei

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home