1 búið, BARA 3 eftir !
Var í sýkla og veiru í morgun, gekk ágætlega alveg. Nú á ég bara eftir línuna, stærðfræðigreiningu og lífræna efnafræði.......... Smá klúður að hafa skemmtilegasta prófið fyrst sko.
En hérna, sá þetta hjá Helgu Rúnu og ákvað að skella þessu inn hjá mér:
Comentaðu nafninu þínu og..
1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér eikkað sem meikar bara sens fyrir mig og þig
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
7. Ef þú lest þetta þá verðuru að setja þetta á bloggið þitt.. You MUST

12 Comments:
pant vera fyrst;)
pant vera önnur ;)
það er að segja ef þú fattar hver ég er... ég er sko með fæðingarblett á vinstri upphandlegg
Hmmmmmm, get ekki sagt að ég sé viss sko !
Tinnslan;)
1. Glingurgella dauðans
2. What lies beneath með þarna Michelle Pfeiffer og Harrison Ford. Djöfull sem þú varst skíthrædd á þeirri mynd og ég alveg í kasti því ég var að sjá hana í annað skiptið ;)
3.Hefðir átt að koma með og hitta SÆTA í gær ;)
4. Við á leikskólanum að róla og syngja Sókrates.
5. Tígur aka. Tiger
6. Á ekkert að fara að koma með mér og hitta SÆTA ???
humh að hitta SÆTA eða SÆTASÆTASTA eða eina SÆTA stelpu:)
Do me! Do me!
Eva sys, þessi með fæðingarblettinn;)
1. Búin að vera systir mín í 21 ár og 202 daga ;)
2. Rúdolf með rauða trýnið.
3. Ég reyndi ekki að kæfa þig með maganum á mér !
4. Er nú mjög léleg í að muna frá því í gamla daga en manstu þegar Auður festi hausinn í stólnum, hahahahahaha. Samt kannski meira minning um hana. Manstu eftir því þegar mamma keypti gulu töluteyjurnar í London og við fórum út og önnur hvor týndi sinni í "vatninu" hjá Sigga og Steina ?
5. Hundur, því að þú ert svo trygg og trú mín kæra.
6. Hvernig ferðu að því að vera sæt, klár, dugleg og kunna að spara ;)
Elín sprelín;)
1. Fullkomnunarsinni, á góðan hátt;)
2. Bara öll lögin úr Júróvísjón 2004, gott partý sem þá var !
3. Muna að tæma loftið úr skiltrektinni!
4. Hmmmm, gæti tengst hvítum slopp og verklegri efnafræði.
5. Uglu
6. Hvert er leyndarmálið á bak við það að massa prófin ?
Guðrún Stef ;)
1. Þú étur pizzu með túnfisk, hvað er það ?
2. Allt með Rammstein
3. Tuttugu froskar !!!!!!!!!!!!
4. Verkleg efnafræði, leist nú ekkert of vel á þig til að byrja með en það hefur nú heldur betur breyst;)
5. Kameldýr, þú kemur sífellt á óvart !
6. Hvenær á svo að koma og kíkja á kallinn?
sko pizza med túnfisk er bara snilld...elska hana!! Einu sinni smakkað...getur ekki hætt...
Sendu inn athugasemd
<< Home